|
Heimsóknir
Í dag: 1 Alls: 25011
|
02.06.2008 22:46:40 / emsl
Það var svaka partýstand á systkinunum á laugardaginn. Rúmlega 2 var mætt í 90 ára afmæli ömmu Gunnu. Amman var svakalega kát og glöð þennan dag, enda þykir henni gaman að hafa svona marga vini og ættingja í kringum sig. Eva María og Sara Lind skemmtu sér konunglega. Þær léku sér bæði úti og inni við alla þá krakka sem voru á staðnum, m.a. Gígju, Guðrúnu Jane og Pétur. Matthías hafði það voða notalegt. Þegar hann var orðinn sibbinn fékk hann sér einfaldlega lúr í fanginu á mömmu og var alveg sama þó hann sæti í miðjum veislusal. 


Um 6 leitið tók svo næsta partý við. Það var útskriftarveisla hjá Arnari frænda sem var að verða stúdent frá MS. Þar héldu stelpurnar fjörinu áfram. Þær fóru strax að leika við Maríu Rut og Hrafnhildi Tinnu og þótti það voða gaman. Matthías var hins vegar nokkurn veginn búinn að fá nóg af partýstandi stuttu eftir að mætt var á svæðið. Hann lét sig þó hafa það í svolítinn tíma en um hálf 8 leitið sagði hann hingað og ekki lengra, hann vildi komast heim. 

Þau sofnuðu öll þrjú nánast um leið og heim var komið, enda var þetta svo sannarlega langur partýdagur hjá systkinunum, en hann var líka skemmtilegur. Svona að lokum: Það eru oft ansi margir sem rúlla hingað inn á síðu krakkanna. Sumir eru duglegir að kvitta í gestabókina og/eða athugasemdakerfið og við þökkum kærlega fyrir það. Hins vegar eru margir sem kvitta sjaldan eða aldrei, en það væri voða gaman að fá kvitt frá ykkur, bara svona til að fá smá hugmynd um hverjir það eru sem eru svona duglegir að fylgjast með fjörugu þrenningunni.
»
28.05.2008 21:09:51 / emsl
Systrunum litlu er ýmislegt til lista lagt. Síðasta sumar ákvað móðir þeirra að kenna þeim örlítið í náttúrufræði með því að sýna þeim hvernig litlir steinar í ávöxtum geta orðið að fallegum trjám. Þá voru, við hátíðlega athöfn, borðaðar nokkrar klementínur og steinunum úr klementínunum safnað saman. Þeim var siðan raðað vandlega af systrunum ofan í blómapott fullum af mold. Það liðu nokkrar vikur en síðan fór að kíkja upp úr moldinni grænn lítill stöngull. Systurnar hafa hlúð að þessu litla tré allar götur síðan.
Fyrir stuttu var svo ákveðið að gera það sama með eplasteina. Á aðeins örfáum dögum birtist fallegur grænn stöngull sem á undraverðum tíma hefur vaxið og bætt á sig laufblöðum.
Systurnar hafa mjög gaman af því að fylgjast með þessum flottu trjám sem þær bjuggu til alveg sjálfar. Þær vökva þau reglulega og fylgjast vel með því hvernig laufblöðin bætast á trén. Móður þeirra til mikillar gleði virðast systurnar hafa töluvert grænni fingur en hún sjálf, sem sífellt er að slá eigin met í því hversu stutt plöntur tóra undir hennar handleiðslu.
Eins og margir krakkar hafa stelpurnar gaman af því að stússast í eldamennsku og bakstri. Þær fá stundum að taka þátt í þessum eldhússtörfum og standa sig ávallt með glæsibrag. Nýverið bökuðu þær t.d. gómsæt "hjartabrauð" eins og þau hafa verið kölluð á heimilinu. Nafnið er dregið af því að brauðdegið settu stelpurnar í lítil hjartalaga mót. Úr urðu því litlar hjartalaga brauðbollur sem voru einstaklega gómsætar. Ekki var nú verra að litlu bakarameistararnir notuð spelt við baksturinn og slepptu öllum sykri.
Svo að lokum smá um litla prinsinn á heimilinu. Hann er vissulega sífellt að stækka og þroskast. Um leið eykst skapið í litla herramanninum, enda væri annað algjört stílbrot á þessu heimili. Þeir sem halda að það sé fjör á bænum núna með tvær ákveðnar dömur og tvo ákveðna foreldra geta því beðið spenntir eftir því fjöri sem verður þegar litli kúturinn verður orðinn ögn eldri og fer að blanda sér með áberandi hætti í stjórnunina í Vesturbænum.
Nú í kvöld var voða gaman að fylgjast með honum þegar hann var að leika sér með blöðru. Hann hafði svo ógurlega gaman af henni og hamagangurinn í herranum var slíkur að móðirin hélt að hann tækist á loft, enda baðaði hann út öllum öngum á ógnarhraða. Blaðran var slegin til og frá auk þess sem hún var kisst og knúsuð fram og til baka. Þetta var án efa skemmtilegasta leikfangið sem kúturinn komst í tæri við í dag.
»
26.05.2008 20:16:32 / emsl
Já, það var svo sannarlega líf og fjör hjá flottu systkinunum í gær. Klukkan 11 var öll fjölskyldan mætt niður í Dómkirkju til að fara í hina árlegu vorferð með sunnudagaskólanum. Það var hreint með ólíkindum hvað við vorum heppin með veður, enda bæði dagarnir á undan og dagurinn í dag ekkert til að hrópa húrra fyrir hvað veðráttu varðar. Það er augljóst að fólkið í kirkjunni er í góðu sambandi við Herrann á háloftinu. Við fórum öll saman með rútu á frábæran stað í Heiðmörkinni. Þar voru leiktæki, grill og hin besta aðstaða til að leika sér og hafa það notalegt. Það voru grillaðar pulsur, farið í leiki, sungið og hver einn og einasti ferðalangur skemmti sér konunglega.           Við komum aftur í bæinn að verða 3, en þá var fjörið ekki búið því þá var skroppið heim, skipt um föt og farið í afmæli til Maríu Rutar. Stóra frænkan er orðin 7 ára gömul, VÁ! Það var ekki síður skemmtilegt þar, enda frænkurnar allar duglegar að leika sér saman. Matthías var meira í því að sjarmera eldra fólkið, enda fagmaður á því sviði. Dagurinn var því hinn besti og systkinin voru svo sannarlega sæl og glöð þegar þau fóru í rúmið eftir viðburðaríkan og skemmtilegan dag.
»
22.05.2008 14:11:19 / emsl
Eva María er voða spennt fyrir Eurovision í kvöld. Ástæðan er ekki tónlistaráhugi stúlkunnar, né sérstakur áhugi fyrir keppninni sem slíkri. Áhuginn nær ár aftur í tímann. Þegar Eurovision var í fyrra var sköpuð sérstök stemning á heimilinu, Eva María fékk að vaka lengur (Sara Lind var svo lítil að hún sofnaði bara á sínum venjulega tíma) og hún fékk að gæða sér á snakki inni í stofu um kvöldið. Þetta þótti ungu dömunni ógurlegt sport. Í nokkrar vikur eftir Eurovision í fyrra var hún sífellt að spyrja hvenær Eurovision yrði aftur og var sífellt að bíða. Nú er loksins komið að því.
Stúlkurnar fá báðar að vaka lengur í kvöld, þó afar líklegt sé að þær muni sofna áður en keppninni líkur. Þær fá að borða popp inni í stofu á meðan á keppninni stendur (snakkið bíður fram á laugardag) og það er aðal tilhlökkunarefnið, allavega hjá Evu Maríu. Sara Lind hefur meira gaman af tónlistinni heldur en Eva María og ef marka má áhuga hennar á þeim lögum sem hún heyrði og sá á þriðjudaginn, mun hún dilla sér krúttlega í takt við tónlistina í kvöld.
»
20.05.2008 22:09:13 / emsl
Þetta var afskaplega góður dagur fyrir systkinin þrjú. Matthías var hress og kátur hjá pabba í morgun og þeir feðgar skemmtu sér vel saman. Litli kúturinn er sífellt að þroskast og nú er orðið voða gaman að sitja með honum á gólfinu og leika við hann ýmsa leiki. Í hádeginu kom mamma heim og litli snáðinn var voða kátur að sjá múttu sína, eins og alltaf. Mamma, pabbi og Matthías borðuðu saman hádegismat áður en pabbi fór í skólann að vinna. Eftir hádegið var svo leikið með mömmu. Matthías fékk, eins og oft áður, að leika sér með hljóðfærin sem fjölskyldan er að safna í sérstaka hljóðfærakistu. Hann er orðinn nokkuð lúnkinn með trommurnar og sílafóninn og er farinn að átta sig á því að nota kjuðann til að búa til hljóð með hljóðfærunum í staðinn fyrir að stinga honum bara upp í sig. Flinkur og flottur upprennandi tónlistamaður þarna á ferðinni.
Það var svaka fjör hjá stelpunum eftir leikskólann því Berglind UPPÁHALDS-FRÆNKA kom að sækja skotturnar. Frænkurnar fóru svo í langa og skemmtilega rólóferð þar sem mikið var klifrað og enn meira rólað. Það var sko gaman. Á leiðinni heim slettist eitthvað örlítið upp á vinskapinn því Eva María stóð fast á þeirri meiningu sinni að hún ætti rétt á nammi, en eins og allir vita er ekki nammidagur á þriðjudögum. Uppáhalds-frænkan vissi eins og var að nammiát alla daga er hvorki hollt né gott fyrir litlar skottur og útskýrði það fyrir hinni ákveðnu frænku sinni. Mótmælum Evu Maríu linnti hins vegar ekki við útskýringarnar og þegar komið var í Hávallagötuna fór ekki á milli mála að hinar þrjár fræknu voru mættar. Það þurfti enga vörubílstjóra liggjandi á bílflautum til að hverfið áttaði sig á því að nú var búið að efna til háværra mótmæla.
Uppáhalds-frænkan og Sara Lind komu inn og útskýrðu fyrir mömmu og Matthíasi að litli mótmælandinn stæði fyrir utan í misjöfnu skapi. Mamman arkaði því út í hlutverki sáttasemjara. Með rólegum og yfirveguðum útskýringum móðurinnar á því að í dag væri þriðjudagur en ekki laugardagur var reiðin fljót að renna af litla mótmælandanum sem í kjölfarið kom inn á heimilið í góðu skapi.
Ekki var svo verra að Uppáhalds-frænka skildi borða kvöldmat á Hávallagötunni. Þau eru svo sannarlega heppin að eiga svona flotta frænku.
Takk fyrir daginn, Berglind!
»
19.05.2008 20:19:09 / emsl
Systurnar fengu langa fríhelgi. Það var námskeiðsdagur á föstudaginn í leikskólanum og því fengu þær að skottast með Matthíasi og foreldrum sínum allan daginn. Um morguninn voru þær heima hjá pabba og Matthíasi og léku með þeim. Eftir hádegi var farið í stússerí með mömmu.
Þegar mamma var búin að vinna á föstudaginn var pabba skutlað upp í skóla. Þaðan var förinni heitið í Kærleikskot. Tilgangurinn var að skrifa undir samning vegna þess að nú styttist í að Matthías fái að leika við krakkana hjá Hugrúnu og Helenu. Hann fær að byrja um miðjan ágúst. Svakalega verður það spennandi. Sara Lind hefur ekki hitt Hugrúnu og Helenu síðan hún hætti í Kærleikskoti fyrir tæpu ári síðan. Það var því gaman fyrir þær að hittast aftur.
Á laugardaginn buðu amma og afi á Bakkastöðum stelpunum með sér í Húsdýragarðinn. Þar var víst nánast hálf þjóðin, enda hinn árlegi fjölskyldudagur Stöðvar 2. Fólksfjöldinn virtist þó ekki hafa skemmt mikið fyrir stelpunum sem sögðust hafa skemmt sér ansi vel.
Sunnudagurinn var tekinn í almennt stúss á heimilinu. Stelpurnar fengu að spreyta sig á málaralistinn, Matthías dúllaði sér með hitt og þetta dótið og mamma og pabbi sinntu hinum ýmsu verkum sem hafa setið á hakanum hjá hinni uppteknu fjölskyldu.
Það var gott að komast aftur að hitta vinkonur sínar á leiksólanum í dag. Það er svo gaman á leikskólanum þegar sumarið fer að láta sjá sig. Þá er hægt að vera enn meira úti en venjulega og njóta þess að þurfa ekki alltaf að vera kappklæddur við útileikina. Nú fer hins vegar að styttast í sumarfrí stelpnanna. Það eru fjórar vikur eftir og svo fara þær í frí. Það verður nú ofsa notalegt.
»
15.05.2008 11:17:23 / emsl

Á mánudaginn fóru systurnar með mömmu í leikhúsið að sjá Skoppu og Skrítlu. Mikið óskaplega var gaman. Eva María var huguð og sjálfstæð að vanda og spjallaði heilmikið við vinkonurnar Skoppu og Skrítlu. Söru Lind þótti heppilegra að vera í fanginu á mömmu, en fylgdist vandlega með vinkonunum. 
Eva María settist á dýnu fremst upp við sviðið og naut sín þar í botn. Mamma og Sara Lind sátu aðeins aftar á stólum, svona í hæfilegri fjarlægð. Þær (þ.e. Eva María, Sara Lind og mamman) lifðu sig allar mikið inn í sýninguna og höfðu ofsalega gaman af henni. Á meðan systurnar upplifðu töfra leikhússins var Matthías í góðu yfirlæti hjá ömmu, afa og Berglindi á Bakkastöðum. Það er nú ekki slæmt að fá svona öðru hvoru óskipta athygli frá þeim, enda samkeppnin með ólíkindum hörð þegar skotturnar tvær eru á staðnum. Í gær var svo ömmu og afa kaffi á leikskólanum. Það var nú skemmtilegt. Amma Valla var niðri hjá Söru Lind, afi Hermann var uppi hjá Evu Maríu og afi Jón var helming tímans hjá hvorri dömu. Amma Valla skaust svo aðeins í lokinn upp til Evu Maríu til að knúsa stelpuna sína. Það virðist sem allir hafi skemmt sér konunglega, hvort sem það eru börnin, afar og ömmur eða kennarar.      
»
10.05.2008 15:27:08 / emsl
Litla skottan hún Sara Lind er ennþá lasin. Hún er reyndar búin að vera hitalaus í gær og í dag, en hún er samt ennþá svolítið slöpp. Hluti af ástæðunni fyrir því er þó sú að hún hefur borðað voða lítið í veikindunum, svo í dag og á morgun mun hún vonandi ná meiri orku með því að vera dugleg að borða.
Eva María fór núna áðan til ömmu og afa á Bakkastöðum og ætlar að sofa þar í nótt. Það er voða spennandi og verður örugglega óskaplega notalegt að fá að vera ein hjá ömmu og afa, án þess að þurfa að deila athygli og orku þeirra með systkinum sínum. Það er ekki daglegt brauð hjá systkinunum að fá óskipta athygli og Eva María mun klárlega nýta sér það til hins ýtrasta.
Matthías litli hefur sem betur fer ekki fengið flensuna sem Sara Lind er með, en hann er samt með smá kvef. Það er þó ekkert voðalega mikið og hann kvartar ekkert yfir smá hósta öðru hvoru. Hann er því hinn sprækasti þessa dagana, líkt og áður.
Á mánudaginn ætla systurnar svo að fara með mömmu í leikhúsið að sjá Skoppu og Skrítlu. Það er mikið kapp lagt á að Sara Lind verði orðin hress fyrir þann tíma, enda hefur hún talað um að fara í leikhús aftur nánast daglega síðan hún fór að sjá Gosa fyrr í vetur. Ef fram heldur sem horfir og ef næst að halda henni í rólegheitum og hollu orkumiklu matarræði í dag og á morgun, mun litla daman að öllum líkindum vera orðin hress á mánudag. Við vonum að minnsta kosti það besta.
»
07.05.2008 14:11:04 / emsl
Sara Lind litla er nú búin að vera heima lasin síðan á mánudag. Þrír dagar eru einhvers konar met í þessari fjölskyldu. Börnin eru almennt ofsa hraust og ef einhver verður lasinn er það sjaldnast í meira en einn dag.
Litla lasarínan er nú ekkert ofsalega sátt við að komast ekki í skólann. Hún segir reglulega: "Ég er voða glöð, má ég ekki fara í skólann minn núna?" Litla krúttið. Það er a.m.k. ljóst að henni þykir svaka gaman í skólanum og verður án efa afar ánægð að komast þangað aftur þegar hún er orðin hressari.
»
06.05.2008 14:40:42 / emsl
Sunnudagurinn síðasti var voða skemmtilegur. Í sunnudagaskólanum var vorhátíðin, sem er árleg skemmtun þar sem messan er sérstaklega ætluð litla fólkinu og eftir messu er svo farið fyrir utan Dómkirkjuna, grillað og haft gaman. Í messunni sjálfri stóðu systurnar sig eins og hetjur, en Matthías hafði það voða kósý og svaf rólegur. Litlu sunnudagaskólasysturnar eru orðnar svo vanar og klárar í öllum lögum og fleiru að þær voru þarna eins og hverjir aðrir kirkjunnar þjónar. 
Eftir messuna var farið út og pulsur grillaðar. Það sem setti punktinn yfir i-ið var töframaður sem kom í heimsókn og skemmti ungum sem öldnum. Eva María hafði sérstaklega gaman af töframanninum og fylgdist agndofa með hinum glæsilegu töfrabrögðum sem hann hristi fram úr erminni. Hún gerðist meira að segja svo fræg að fá að aðstoða hann í einu atriðinu. Ekki amalegt það! 
Sara Lind var minna heilluð af töfrunum og vildi heldur vera bara með pabba í rólegheitunum og gæða sér á pulsum. Matthías var líka frekar rólegur yfir töframanninum, en fannst samt gaman að fylgjast með öllu fólkinu og fannst pulsurnar líka alveg hreint ágætar. 
Seinna um daginn fóru systkinin svo í heimsókn til Maríu Rutar frænku. Frænkurnar þrjár léku sér saman bæði úti og inni og höfðu gaman af. Matthías hafði það notalegt á meðan í sófanum hjá fullorðna fólkinu og naut þess að láta dást svolítið að sér.
»
30.04.2008 22:38:03 / emsl
Matthías litli varð svolítið lasinn í gær. Hann fékk hita, reyndar ekki mjög háan, en varð voða lítill og ómögulegur. Mömmuna grunaði að hann hefði smitast af streptokokka-sýkingu sem hún er búin að vera með, en sem betur fer er ekkert útlit fyrir að svo sé. Annar möguleiki var að snáðinn væri að fara að fá tennur, en þegar gómurinn er skoðaður virðist ekkert bóla á tönnslum. Sem sagt, litli lasarus virðist bara hafa fengið einhverja saklausa flensu, sem var svo að mestu liðin hjá í dag.
Eva María og Sara Lind ruku beint út í garð þegar þær komu heim úr skólanum í dag. Þar léku þær sér, háværar og kátar þannig að allt hverfið hlýtur að hafa tekið eftir. Þær fóru í alls kyns leiki, m.a. hjóluðu þær, léku listir sýnar með því að príla á steinum og fóru svo í sinn víðfræga valfundarleik. Það var sem sagt mikið fjör í þeim skottum.
»
29.04.2008 20:19:31 / emsl
Nú eru systurnar báðar komnar á stóru-stelpna-hjól með hjálpardekkjum. Í sumar á svo sannarlega á ná góðum tökum á hjólinu og æfa sig hvenær sem tækifæri gefst. Þær voru með pabba úti í garði í gær að leika sér og æfa sig á hjólunum og voru báðar stórglæsilegar, eins og sjá má hér að neðan. 
»
23.04.2008 21:20:42 / emsl
»
26.02.2008 21:41:01 / emsl
 
Hér eru hressar systur á leið í skólann í fínu skólabúningunum sínum

Á meðan systurnar eru í skólanum er Matthías heima hjá pabba fyrir hádegi og hjá mömmu eftir hádegi. Það er sko ekki leiðinlegt að fá að leika með pabba og mömmu á daginn.
»
25.01.2008 23:36:47 / emsl
Gullmolinn hún Eva María varð 5 ára í dag. Hún er búin að eiga frábæran dag og fór í rúmið í kvöld sæl og glöð eftir notalegan afmælisdag. Í morgun fékk hún afmælisgjafir frá mömmu, pabba, Söru Lind og Matthíasi. Það er alltaf gaman að fá pakka og hún var gríðarlega ánægð með það sem hún fékk. Eftir hádegi fékk afmælisstúlkan að ráða hvað yrði gert. Þegar hún var spurð sagði hún að hún væri með óskalista í höfðinu um hvað við skildum gera, en efst á þeim lista væri að fara í heimsókn upp á Bakkastaði. Það var því lán í óláni að amman var veik heima í dag og gat því tekið á móti afmælisstúlkunni og förunauti hennar. Eftir Bakkastaða-heimsóknina var farið heim þar sem stjarna dagsins bakaði pizzu ofan í fjölskylduna sína. Í eftirrétt bauð hún svo öllum upp á ís. Myndarskapurinn í eldhúsinu hélt áfram því prinsessan, ásamt systur sinni, bakaði afmælisköku fyrir fjölskylduafmælið sem verður á morgun. Til hamingju með daginn, elsku Eva María.
»
Síður: 1 2 3 ... 7
|
|